Öldrunarstofnanir

Öldrunarstofnanir

Aldraðir sem ekki treysta sér til að dvelja lengur á heimili sínu þrátt fyrir heimaþjónustu, eiga þess kost að sækja um vist á öldrunarstofnun þar sem þeir njóta þjónustu og umönnunar við hæfi.

Dvalar- og hjúkrunarrými

  • Dvalarheimili, eða dvalarrými, eru ætluð þeim sem eru við nokkuð góða heilsu en geta ekki lengur séð um heimilishald þrátt fyrir heimaþjónustu.
  • Hjúkrunarheimili, eða hjúkrunarrými eru ætluð langlegusjúklingum eða þeim sem eru of lasburða til að dvelja á dvalarheimilum og þarfnast stöðugrar umönnunar.
  • Aldraðir eiga möguleika á hvíldarinnlögn á mörgum hjúkrunarheimilum sem yfirleitt varir frá þremur og upp í fimm vikur. Læknar, starfsfólk heimahjúkrunar og fleiri sem sinna öldrunarþjónustu veita nánari upplýsingar.

Öldrunarstofnanir á landinu
Dvalarheimili - umsókn á island.is
Hjúkrunarheimili - umsókn á island.is

Dvalarkostnaður

  • Tryggingastofnun ríkisins (TR) tekur þátt í dvalarkostnaði á öldrunarstofnunum en það fer eftir tekjum vistmanns hver hlutur hans í kostnaði er.
  • Þeir sem hafa litlar eða engar tekjur fyrir utan lífeyrisgreiðslur frá TR geta átt rétt á svonefndum vasapeningum frá stofnuninni.
  • Innifalið í dvalarkostnaði á öldrunarstofnun er meðal annars lyf, endurhæfing og öll læknisþjónusta.

Um greiðslu vasapeninga á vef TR

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica