Hjúkrunarheimili - Umsókn
Hjúkrunarheimili - Umsókn
Áður en óskað er eftir dvöl á hjúkrunarheimili þarf að fara fram vistunarmat þar sem sérstök nefnd metur aðstæður umsækjanda. Plássi á hjúkrunarheimili er ekki úthlutað fyrr en útséð er með önnur úrræði.
Yfirlit
Vistunarmat
- Telji hinn aldraði eða aðstandendur hans tímabært að sækja um dvöl á hjúkrunarheimili þarf að sækja um vistunarmat til sérstakra vistunarmatsnefnda.
- Vistunarmatsnefndir eru sjö og starfa í hverju heilbrigðisumdæmi landsins.
Aðsetur vistunarmatsnefnda og símatímar
Heilbrigðisumdæmi landsins - Beiðni um vistunarmat á að senda til vistunarmatsnefndar í því umdæmi sem umsækjandi á lögheimili í.
- Sérstakt umsóknareyðublað um vistunarmat er að finna á vef Landæknisembættis en starfsfólk heilsugæslu getur útvegað eyðublaðið sé þess óskað.
Umsókn um vistunarmat, (word, 85 kb)
Ítarlegt efni um vistunarmat á vef Landlæknisembættis
- Þegar umsókn berst vistunarmatsnefnd er aflað ýmissa gagna sem þarf til að skera úr um þörf umsækjandans fyrir dvöl á hjúkrunarheimili. Heilbrigðisstarfsfólk hefur samband við umsækjanda og heimsækir eftir atvikum til að kanna heilsu hans og aðbúnað.
- Afgreiðsla umsóknar á að taka 6-8 vikur og eru niðurstöður sendar til umsækjanda og fagaðila innan heilbrigðis- og félagsþjónustu.
- Sé umsókn hafnað er umsækjanda bent á önnur úrræði eins og liðveislu heilsugæslu og félagsþjónustu sem hentar hans aðstæðum. Heimaþjónusta á island.is
- Sé umsókn samþykkt er næsta skref að sækja um rými á hjúkrunarheimili.
-
Vistunarmatið gildir í 12 mánuði. Hafi umsækjandi ekki fengið vist að þeim tíma liðnum gerir vistunarmatsnefnd honum viðvart og býður honum að fá mat gert að nýju.
-
Sé umsækjandi ósáttur við afgreiðslu vistunarmatsnefndar má vísa málinu til umsagnar Landlæknis.
-
Aldraðir og aðstandendur þeirra geta fengið ráðgjöf um vistunarmat og aðra kosti sem þeim standa til boða hjá vistunarmatsnefnd, heimilislækni, heilsugæslu og félagsþjónustu sveitarfélaga.
Dvalarumsókn
- Þegar svar berst umsækjanda um að vistunarmat hafi verið samþykkt fylgir svarbréfinu umsókn um vist á hjúkrunarheimili. Umsóknina á að senda útfyllta til vistunarmatsnefndar.
- Heimilt er að sækja um dvöl á allt að 15 heimilum hvar sem er á landinu.
- Þegar pláss losnar á einhverju þeirra heimila sem hinn aldraði kýs að dveljast á er stjórn þess frjálst að velja á milli þeirra þriggja umsækjenda sem eru í mestri þörf og efstir á biðlistanum.
- Röð umsækjenda fer eftir stigafjölda vistunarmatsins sem sýnir hversu brýn þörf fyrir vistun er. Þeir eru efstir sem við versta heilsu og erfiðastar aðstæður búa og lengst hafa beðið.
Val á hjúkrunarheimili
- Hjúkrunarheimilin veita sjálf upplýsingar um starfsemi sína og aðbúnað heimilisfólks. Þá hafa mörg heimilanna vef eða hafa gefið út bæklinga þar sem má kynna sér aðstæður.
- Starfsmenn vistunarmatsnefnda geta einnig veitt ráðgjöf um þau heimili sem völ er á og helst koma til greina í tilviki hvers og eins.
Vert að skoða
- Hverfið mitt, hverfavefir Reykjavíkurborgar
- Um dvalarheimili á island.is
- Um dvalar- og hjúkrunarheimili á vef TR
- Um málefni aldraðra á vef velferðarráðuneytis

