Dvalarheimili - Umsókn

Dvalarheimili - Umsókn

Áður en sótt er um vist á dvalarheimili þarf að fara fram mat á þörf fyrir dvalarrými. Skoðaðar eru heilsufarslegar og félagslegar aðstæður hins aldraða og metið hve þörf hans er brýn. 

Mat á þörf aldraðra fyrir dvalarrými

  • Ekki er unnt að sækja beint um dvöl til dvalarheimila heldur þarf fyrst að fara fram mat á þörf fyrir vistun.
  • Sótt er um mat á þörf fyrir dvalarrými á sérstöku eyðublaði sem fæst meðal annars hjá félagsþjónustu sveitarfélaga og á vef velferðarráðuneytis.
  • Umsókn er skilað inn til félagsþjónustu sveitarfélags. Þar er hún yfirfarin og kannað hvort umsækjandi geti búið áfram í eigin húsnæði með aukinni þjónustu. Ef svo er lýkur ferlinu þar.
  • Ef ljóst er að aukin þjónusta svarar ekki þörf umsækjanda er umsókn send sérstöku matsteymi sem sér um framkvæmd matsins.
  • Matsteymið hefur sex vikur til að framkvæma mat. Að því loknu á að kynna umsækjanda niðurstöðu. Teljist umsækjandi ekki í þörf fyrir dvalarrými skal rökstyðja niðurstöðu.
  • Sé umsækjandi metinn í þörf fyrir dvalarrými er niðurstaða send félagsþjónustu sveitarfélags sem kynnir umsækjanda hvaða úrræði standa til boða og tekur við óskum hans um dvalarstað.
  • Mat á þörf umsækjanda fyrir dvalarrými gildir í níu mánuði. Hafi hann ekki fengið vistun að þeim tíma liðnum þarf að gera nýtt mat.

Umsókn um mat á þörf fyrir dvalarrými

  • Félagsþjónusta sveitarfélaga tekur við óskum umsækjanda um dvalarstað þegar hann hefur verið metinn í þörf fyrir dvalarrými. Félagsþjónustan sendir síðan þær óskir til matteymis.



Öldrunarmál á vef velferðarráðuneytis
Öldrunarstofnanir á landinu


  • Sækja má um vist á fleiri en einu dvalarheimili hvar sem er á landinu og er þeim raðað í forgangsröð eftir óskum umsækjanda.
  • Þegar dvalarrými losnar lætur umsjónarmaður matsins stjórn dvalarheimilis í té nöfn þriggja einstaklinga og skal bjóða einum þeirra rýmið.
  • Ráðgjöf um vistunarmöguleika og önnur búsetuúrræði veita félagsþjónustur sveitarfélaga. 

Öldrunarstofnanir og þjónusta við aldraða hjá nokkrum sveitarfélögum

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica