Húsaleigubætur
Húsaleigubætur
Íbúar í leiguhúsnæði geta átt rétt á húsaleigubótum hvort sem þeir leigja félagslegt húsnæði eða á almennum markaði.
Umsókn og reglur
- Umsókn um húsaleigubætur á að skila til þess sveitarfélags sem umsækjandi á lögheimili í.
- Umsókn þarf að endurnýja í upphafi hvers árs.
- Eyðublöð fást á skrifstofum sveitarfélaganna og á vef velferðarráðuneytis en sum sveitarfélög hafa útbúið sérstök eyðublöð.
Almennar upplýsingar um húsaleigubætur
- umsókn um húsaleigubætur,
- reiknivél,
- bæklingur (pdf)
- Húsaleigusamningi þarf að þinglýsa sé ætlunin að sækja um húsaleigubætur. Það er gert hjá sýslumanni í því umdæmi sem hin leigða fasteign er skráð.
- Til að eiga rétt á húsaleigubótum þarf umsækjandi að eiga lögheimili í húsnæðinu. Námsmenn er sækja nám í annað sveitarfélag eru undanþegnir þessu skilyrði.
- Bætur eru ekki greiddar vegna leigu á herbergi með sameiginlegum aðgangi að eldhúsi og snyrtingu, né íbúða í atvinnuhúsnæði. Undanþegnir frá þessum skilyrðum eru:
- Námsmenn sem leigja á stúdentagörðum eða á heimavist.
- Fatlaðir sem leigja á sambýlum.
- Húsaleigubætur eru reiknaðar út frá leiguupphæð, fjölskylduhögum, tekjum og eignum.
- Húsaleigubætur eru skattfrjálsar en framtalsskyldar.
- Umsækjandi um húsaleigubætur getur skotið afgreiðslu umsóknar til úrskurðarnefndar um félagsþjónustu sveitarfélags telji hann ekki rétt að málum staðið. Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Sérstakar húsaleigubætur
- Sum sveitarfélög veita sérstakar húsaleigubætur til þeirra sem búa við erfiðar fjárhagslegar og/eða félagslegar aðstæður. Sækja þarf um þessar bætur hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna. Almennar upplýsingar um húsaleigubætur á vef velferðaráðuneytis

Mittsvæði
