Húsaleigubætur

Húsaleigubætur

Íbúar í leiguhúsnæði geta átt rétt á húsaleigubótum hvort sem þeir leigja félagslegt húsnæði eða á almennum markaði.

Umsókn og reglur

  • Umsókn um húsaleigubætur á að skila til þess sveitarfélags sem umsækjandi á lögheimili í.
  • Umsókn þarf að endurnýja í upphafi hvers árs.
  • Eyðublöð fást á skrifstofum sveitarfélaganna og á vef velferðarráðuneytis en sum sveitarfélög hafa útbúið sérstök eyðublöð.


Almennar upplýsingar um húsaleigubætur
- umsókn um húsaleigubætur,
- reiknivél
- bæklingur (pdf)


  • Húsaleigusamningi þarf að þinglýsa sé ætlunin að sækja um húsaleigubætur. Það er gert hjá sýslumanni í því umdæmi sem hin leigða fasteign er skráð.
  • Til að eiga rétt á húsaleigubótum þarf umsækjandi að eiga lögheimili í húsnæðinu. Námsmenn er sækja nám í annað sveitarfélag eru undanþegnir þessu skilyrði.
  • Bætur eru ekki greiddar vegna leigu á herbergi með sameiginlegum aðgangi að eldhúsi og snyrtingu, né íbúða í atvinnuhúsnæði. Undanþegnir frá þessum skilyrðum eru:
  • Námsmenn sem leigja á stúdentagörðum eða á heimavist.
  • Fatlaðir sem leigja á sambýlum.
  • Húsaleigubætur eru reiknaðar út frá leiguupphæð, fjölskylduhögum, tekjum og eignum.
  • Húsaleigubætur eru skattfrjálsar en framtalsskyldar.
  • Umsækjandi um húsaleigubætur getur skotið afgreiðslu umsóknar til úrskurðarnefndar um félagsþjónustu sveitarfélags telji hann ekki rétt að málum staðið. Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála

Sérstakar húsaleigubætur

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica