Félagslegt húsnæði
Félagslegt húsnæði
Þeir sem hafa lítil fjárráð eða eða eiga í húsnæðisvanda geta sótt um félagslegt húsnæði eða aðra aðstoð hjá sínu sveitarfélagi.
Félagslegt húsnæði
- Þeir sem eiga í húsnæðisvanda geta fengið ráðgjöf um réttindi sín og úrræði hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna, til að mynda aðstoð við að leita að húsnæði.
- Þeir sem eiga við bráðan húsnæðisvanda að etja og geta ekki sjálfir séð sér fyrir húsnæði af félagslegum eða fjárhagslegum orsökum geta átt möguleika á úthlutun félagslegrar leiguíbúðar, kaupleigu- eða eignaríbúðar.
- Íbúar í félagslegu leiguhúsnæði geta átt rétt á húsaleigubótum.
Umsókn og úthlutun
- Sótt er um félagslegt húsnæði til húsnæðisfulltrúa eða félagsþjónustu sveitarfélaganna á eyðublöðum sem þar fást.
Félagslegt leiguhúsnæði hjá nokkrum sveitarfélögum
Akureyri Árborg Fjarðabyggð Fljótsdalshérað Hveragerði Ísafjörður Kópavogur Mosfellsbær Reykjanesbær Reykjavík Skagafjörður Skagaströnd Vesturbyggð
- Úthlutun félagslegra íbúða ræðst í aðalatriðum af fjölskylduhögum, félagslegum aðstæðum og því að tekjur umsækjanda og eignir séu innan ákveðinna marka.
- Hvert sveitarfélag setur sér nánari reglur um skilyrði fyrir úthlutun félagslegra íbúða og rekstur þeirra. Upplýsingar, úthlutunarreglur og eyðublöð má víða finna á vefjum sveitarfélaganna.
- Ákvarðanir félagsmálanefnda sem afgreiða mál er tengjast félagslegu húsnæði má kæra til úrskurðarnefndar félagsþjónustu.
Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Vert að skoða
- Búsetumál aldraðra á island.is
- Búsetumál öryrkja og fatlaðra á island.is
- Hverfið mitt, hverfavefir Reykjavíkurborgar
- Leigjendur.is
- Reglur um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga
- Umboðsmaður skuldara

Mittsvæði
