Flutt til útlanda
Flutt til útlanda
Sá sem flyst til útlanda og hættir að eiga lögheimili hér á landi verður lögum samkvæmt að tilkynna það Þjóðskrá Íslands áður en hann fer.
Yfirlit
Flutt milli landa
- Þegar einstaklingur eða fjölskylda hefur ákveðið að flytjast búferlum til útlanda er að mörgu að hyggja.
- Þegar flutt er til einhvers hinna Norðurlandanna er nauðsynlegt að tilkynna sig og sína hjá þar til bæru stjórnvaldi í sveitarfélagi sem flutt er til, vegna ýmissa réttinda sem flytjast milli landanna. Framvísa þarf persónuskilríki eða vegabréfi og gefa upp íslenska kennitölu.
- Ef flutt er til landa utan Norðurlanda er nauðsynlegt að kynna sér vel hvaða reglur gilda um dvalar- og atvinnuleyfi í landinu og athuga hvort vegabréfsáritun er nauðsynleg. Æskilegt er afla sér upplýsinga um þær breytingar sem verða á réttindum og skyldum hvers og eins við flutning lögheimilis frá Íslandi.
Flutningur milli landa á vef Sjúkratrygginga Íslands
Atvinna og atvinnuleit erlendis á vef Vinnumálastofnunar - Athuga hvort vegabréf eru gild og sækja um ný ef þarf. Tilkynna til Þjóðskrár Íslands að lögheimili verði flutt og gefa upp fullt aðsetur erlendis.
Upplýsingar um vegabréf
- Athuga hvaða persónuskilríki og skírteini gilda í viðkomandi landi, sækja um ný ef þarf og afla tilskilinna leyfa og vottorða sem nauðsynlegt er að framvísa í viðkomandi landi, til dæmis vegna:
- atvinnu
- menntunar – eigin náms og náms barna
- húsnæðis
- heilsugæslu
- almannatrygginga
- skatta og annarra opinberra gjalda
- ökuréttinda
- Ef börn og unglingar flytja til útlanda með foreldrum sínum er nauðsynlegt að kynna sér vel hvernig menntakerfið í viðkomandi landi er upp byggt. Huga þarf sérstaklega að því hvernig tungumálakennslu fyrir innflytjendur á öllum aldri er háttað.
- Svokallaðir íslenskuskólar, ætlaðir börnum og unglingum, eru starfandi í nokkrum löndum og fást upplýsingar um þá á vefjum íslenskra sendiráða og Íslendingafélaga í viðkomandi löndum.
Íslensk sendiráð og ræðisskrifstofur í útlöndum - Ísland og ýmis erlend ríki og ríkjasambönd hafa gert með sér milliríkjasamninga um gagnkvæm réttindi og skyldur borgara sem flytjast milli landa.
Samningar á milli landa á vef TR
Samningar milli landa á vef Sjúkratrygginga
Tvísköttunarsamningar Íslands við önnur ríki, rsk.is - Ýmsar upplýsingar um flutning til útlanda má finna á vefjum íslenskra sendiráða í viðkomandi löndum og einnig hjá Íslendingafélögum sem starfrækt eru víða um heim.
Íslendingafélög á vef SINE
Íslenskar sendiskrifstofur, sendiráð, fastanefndir og ræðisskrifstofur í útlöndum - Greiða þarf toll af búslóðum og bifreiðum sem flutt eru milli landa. Nánari upplýsingar má finna á vefjum erlendra tollayfirvalda.
Tenglar í upplýsingar um tollamál á vef Tollstjóra - Íslenskir ríkisborgarar halda rétti sínum til Alþingis- og forsetakosninga í 8 ár eftir að lögheimili hefur verið flutt til útlanda.
Umsókn íslensks ríkisborgara sem búsettur er erlendis um að vera tekinn á kjörskrá
- Kosningarréttur í sveitarstjórnarkosningum fellur niður við flutning lögheimilis úr landi.
Vert að skoða
- Algengar spurningar um ný íslensk vegabréf á vef dóm- og kirkjumálaráðuneytis
- Europass, menntun og starfsreynsla á vef Rannsóknarþjónustu Háskóla Íslands
- Eyðublöð og vottorð á vef TR
- Eyðublöð vegna flutninga til útlanda á vef Þjóðskrár Íslands
- Flutningur frá Íslandi á vef TR
- Flutningur milli landa á vef Sjúkratrygginga Íslands
- Gott að vita, fræðsluvefur Landssambands lífeyrissjóða
- Inn- og útflutningur dýra og matvæla á vef Matvælastofnunar
- Námsmenn á leið til útlanda á vef SÍNE
- Námsmenn erlendis á vef Sjúkratrygginga
- Norræn vefgátt um almannatryggingar
- Norræna félagið
- Sendiráð og ræðisskrifstofur erlendra ríkja á Íslandi
- Tenglar í upplýsingar um innheimtumál á vef Tollstjórans
- Tímabundin dvöl í öðru landi á vef TR
- Um alþjóðlegt ökuskírteini á vef Félags íslenskra bifreiðaeigenda
- Um búslóðaflutninga á vef Eimskips
- Um búslóðaflutninga á vef Samskipa
- Um flutning milli Norðurlanda
- Um skatta á Norðurlöndum
- Vegabréfsáritanir á vef utanríkisráðuneytis

