Vaxtabætur
Vaxtabætur
Til að auðvelda fólki að eignast eigið húsnæði greiðir ríkissjóður vaxtabætur sem ganga eiga upp í vaxtakostnað af húsnæðislánum.
Yfirlit
Vaxtabætur
- Þeir sem greiða vexti af lánum sem tekin eru vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota, eiga rétt á vaxtabótum.
- Lán sem mynda rétt til vaxtabóta geta verið vegna:
- kaupa á íbúðarhúsnæði,
- byggingar íbúðarhúsnæðis,
- verulegra endurbóta á íbúðarhúsnæði og Íbúðarlánasjóður hefur veitt,
- greiðsluerfiðleika á lánum sem eru tekin til greiðslu á öðrum húsnæðislánum,
- kaupa á eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð.
- Þeir þættir sem hafa áhrif á fjárhæð vaxtabóta eru fjölskyldustaða, tekjur, eignir, skuldir og lánakostnaður þess sem skráður er fyrir láninu.
- Vaxtabætur skerðast eða falla niður ef eignir fara yfir viss mörk.
- Vaxtabætur eru greiddar ársfjórðungslega. Óheimilt er að nota vaxtabætur til að skuldajafna skuldir einstaklinga hjá Íbúðalánasjóði.
Um vaxtabætur og reiknivél á vef Ríkisskattsjóra
Sérstök vaxtaniðurgreiðsla
- Sérstök vaxtaniðurgreiðsla er tímabundin og tekur til álagningar opinberra gjalda á árunum 2011 og 2012.
- Sérstök vaxtaniðurgreiðsla nemur 0,6% af skuldum vegna lána sem tekin hafa verið vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
- Sérstök vaxtaniðurgreiðsla getur aldrei orðið hærri en 200.000 kr. á ári fyrir hvern mann og 300.000 kr. á ári fyrir einstætt foreldri og hjón eða sambýlisfólk.
- Sérstök vaxtaniðurgreiðsla skerðist hlutfallslega fari eignir að frádregnum skuldum fram úr 10.000.000 kr. hjá einstaklingi og 15.000.000 kr. hjá hjónum eða sambýlisfólki uns hún fellur niður við tvöfalda þá upphæð.
- Sérstök vaxtaniðurgreiðsla að viðbættum vaxtabótum má ekki vera hærri en vaxtagjöld ársins.
- Sérstök vaxtaniðurgreiðsla verður greidd með jöfnum hætti og í tvennu lagi hvort árið fyrir sig. Fyrri greiðslan fer fram 1. maí og sú síðari 1. ágúst að lokinni álagningu opinberra gjalda.
Vert að skoða
Lög og reglugerðir
Hafirðu skoðun eða ábendingu um efni sem þér finnst vanta á vefinn, sendu hana þá á tölvupóstfangið: island@island.is

