Mat fasteigna

Mat fasteigna

Allar fasteignir í landinu eru skráðar og metnar til fasteigna- og brunabótamats hjá Þjóðskrá Íslands.


Mat allra fasteigna í landinu, loftmyndir og verðsjá

Fasteignamat

  • Fasteignamat er mat á verðmæti húss og lóðar sem áætlað er út frá gangverði svipaðra eigna á markaði.
  • Fasteignamat er uppfært árlega í samræmi við þróun fasteignaverðs og fá fasteignaeigendur ávallt tilkynningu um breytingar á því.
  • Eftirtalin opinber gjöld eru reiknuð út frá fasteignamati:
  • fasteignagjöld,
  • erfðafjárskattur og
  • stimpilgjöld vegna þinglýsingar kaupsamninga.

Nánar um fasteignamat

Brunabótamat

  • Sækja verður um brunabótamat innan fjögurra vikna frá því að nýtt húsnæði er tekið í notkun. Fyrsta mat er gjaldfrítt. Beiðni um brunabótamat

  • Brunabótamat er vátryggingarfjárhæð húseignar eða áætlaður kostnaður við að endurbyggja eign sem eyðileggst í eldi.

  • Iðgjöld brunatrygginga eru miðuð við brunabótamat.

  • Brunabótamat er gjaldstofn eftirtalinna opinberra gjalda:

  • gjalds í ofanflóðasjóð,

  • viðlagatryggingagjalds og

  • brunabótamatsgjalds.

Nánar um brunabótamat

Endurmat og fleira

  • Ef húseigandi telur að verðmæti eignar hafi aukist vegna endurbóta er honum skylt að óska eftir endurmati.
  • Ef eigandi fasteignar hefur athugasemdi við gildandi fasteignamat má krefjast úrskurðar Þjóðskrár Íslands. Athugasemd við fasteignamat
  • Hækkun á brunabótamati getur leitt til hækkunar á fasteignamati og hækka þá opinber gjöld og iðgjöld til samræmis.
  • Lánastofnanir nota gjarnan brunabóta- eða fasteignamat til að ákvarða veðhlutfall húseigna, það er hversu há lán þær veita út á eignina.


Fasteign - land eða mannvirki ?
Fasteignarhugtakið eftir Viðar Má Matthíasson

Lög og reglugerðir



Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica