Húsnæðislán
Húsnæðislán
Flestir fjármagna húsnæðiskaup og –byggingar með lánum og þurfa að kynna sér hvaða kjör standa þeim til boða.
Yfirlit
Lánsmöguleikar
- Ýmsar lánastofnanir veita lán til húsnæðiskaupa:
- Íbúðalánasjóður
- Bankar og sparisjóðir.
- Lífeyrissjóðir.
Sjálfsafgreiðsla á vef Íbúðalánasjóðs
Fyrirspurnir
Greiðslumat
Lánsumsókn
Nokkrar reiknivélar
Umsóknir og eyðublöð
- Flestar lánastofnanir fara fram á að greiðslumat fylgi lánsumsókn. Greiðslumat er útreikningur á greiðslugetu og lánsþörf lántakanda eða hversu dýrt húsnæði hann getur keypt miðað við eignir sínar, tekjur og gjöld.
- Lántakendur hjá Íbúðalánasjóði geta gert eigið greiðslumat á Netinu eða fengið aðstoð við gerð þess í síma og á skrifstofum sjóðsins. Aðrir lánveitendur sjá yfirleitt um gerð greiðslumats viðskiptavina sinna.
- Íbúðalánasjóður veitir einstaklingum lán til kaupa, nýbygginga og endurbóta á eigin húsnæði. Landsmenn hafa sama rétt til íbúðalána sjóðsins, óháð búsetu.
- Kærunefnd húsamála sker úr ágreiningsmálum er varða ákvarðanir Íbúðalánasjóðs.
Kærunefnd húsamála
Um húsnæðislán
- Öll lán til húsnæðiskaupa eru veðlán sem þýðir að lánið er tryggt með veði í eigninni sem kaupa á, eða í öðrum fasteignum.
- Þegar ákveðið er hversu hátt lán er veitt til húsnæðiskaupa er einkum miðað við greiðslugetu lántakanda og kaupverð eignarinnar. Lánveitendur skoða einnig brunabóta- eða fasteignamat þeirrar eignar sem á að kaupa eða er veðsett.
- Vextir lána og til hve margra ára lánið er tekið ræður greiðslubyrði lánsins, það er hversu háar afborganir eru af því.
- Ef greiðsluerfiðleikar steðja að má til að mynda leita ráðgjafar og úrræða hjá
- Íbúðalánasjóði,
- lánastofnunum,
- félagsþjónustu sveitarfélaga og
- umboðsmann skuldara.

