Fasteignaviðskipti

Fasteignaviðskipti

Margs þarf að gæta við kaup og sölu á húsnæði enda aleiga fólks oft í húfi.


Í verðsjá fasteigna er hægt að kynna sér söluverð sem fengist hefur fyrir íbúðarhúsnæði samkvæmt kaupsamningum.

Kaup og sala

  • Einungis löggiltir fasteignasalar og lögmenn mega hafa milligöngu um fasteignaviðskipti. Misjafnt er hvaða gjald er sett upp fyrir slíka þjónustu.
  • Einstaklingum er heimilt að sjá um fasteignaviðskipti sín án milligöngumanns en verða að gæta þess að rétt sé staðið að málum í hvívetna enda miklir hagsmunir að veði.
  • Seljandi á að veita glöggar upplýsingar um ástand eignarinnar og gæta þess að sölu- og kynningargögn séu í samræmi við það.
  • Kaupandi tryggir betur stöðu sína með því að skoða eign vandlega áður en kauptilboð er gert.
  • Æskilegt er að kaupandi og seljandi kynni sér hvaða ákvæði gildi um mögulega ábyrgð á göllum á eign.
  • Ekki er leyfilegt að selja eign í fjöleignarhúsi nema eignaskiptayfirlýsing hafi verið gerð.
  • Annað hjóna má ekki selja eða ráðstafa íbúðarhúsnæði sem þau búa í nema með samþykki hins. Sama gildir um eign hjóna sem atvinna annars eða beggja fer fram í.

Samningar og skjöl

  • Í kauptilboði verður að gæta þess að hafa viðeigandi fyrirvara þegar þess þarf með, svo sem um lánsloforð og greiðslufyrirkomulag.
  • Viðeigandi skjölum þarf að þinglýsa eða aflýsa hjá sýslumanni í því umdæmi sem fasteignin er. Sé það ekki gert er réttur kaupanda ekki fulltryggur.
    Um þinglýsingar og aflýsingar á vef sýslumannsembættanna
  • Kaupsamningi, veðskuldabréfum (lánum) og afsali eignar á að þinglýsa.
  • Uppgreiddum lánum og öðrum skjölum sem lokið hafa hlutverki sínu á að aflýsa.
  • Ráðlegt er að halda til haga öllum gögnum er viðkoma fasteignaviðskiptum.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica