Byggja og breyta
Byggja og breyta
Sækja verður um byggingarleyfi þegar reisa á hús, endurbyggja, byggja við eða breyta. Ekki má hefja framkvæmdir fyrr en leyfi liggur fyrir.
Yfirlit
Byggingarleyfi
- Umsóknareyðublöð fyrir byggingarleyfi er að fá hjá byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags. Þau má líka víða nálgast á vefjum sveitarfélaganna.
- Sveitastjórnir veita byggingarleyfi að fengnu áliti byggingarnefnda og -fulltrúa sem hafa eftirlit með að öllum ákvæðum sé fylgt við byggingaframkvæmdir.
- Dæmi um framkvæmdir sem verður að sækja um leyfi fyrir eru:
- Breytingar á notkun húsa.
- Sólpallar, heitir pottar og móttökudiskar.
- Girðingar yfir vissri hæð og steyptir skjólveggir.
- Ef fyrirhugaðar breytingar á notkun húsnæðis eða stækkun þess stangast á við gildandi deiliskipulag þarf skipulagsnefnd sveitarfélags að fjalla um umsóknina og getur það lengt afgreiðslu hennar umtalsvert.
- Fyrir byggingarleyfi þarf að greiða byggingarleyfisgjald. Ýmis önnur gjöld eru lögð á vegna byggingaframkvæmda, svo sem gatnagerðargjöld og gjöld fyrir úttektir og vottorð.
- Sé ágreiningur um afgreiðslu byggingarleyfsumsókna má skjóta málinu til Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.
Annað
- Lóðum til nýbygginga er úhlutað af sveitarfélögum sem hvert um sig setja sér reglur um lóðaveitingar.
- Sækja verður um brunabótamat í síðasta lagi fjórum vikum eftir að nýtt húsnæði er tekið í notkun. Fyrsta mat er gjaldfrítt.
Umsókn um fyrsta brunabótamat - Hægt er að sækja um styrki vegna endurbóta og viðhalds húsa með varðveislugildi. Þeir eru veittir af Húsfriðunarsjóði, fjárlaganefnd og sumum sveitarfélögum.
Styrkir Húsfriðunarsjóðs vegna húsa með varðveislugildi
Almennt um byggingar og framkvæmdir á vef Skipulagsstofnunar
Vert að skoða
- Byggingarsvæði í Reykjavík
- Fasteigna- og brunabótamat á island.is
- Húsvernd og friðun á vef Reykjavíkurborgar
- Listar yfir löggilta meistara og hönnuði á vef Umhverfisráðuneytis
- Um byggingarfulltrúa og listi á vef Skipulagsstofnunar

