Flutt til Íslands
Flutt til Íslands
Þegar fjölskylda eða einstaklingur flytur til Íslands eftir að hafa búið í útlöndum, verður að skrá nýtt aðsetur hjá Þjóðskrá Íslands.
Yfirlit
Flutt heim
- Þegar íslenskir ríkisborgarar flytja heim til Íslands eftir að hafa búið í útlöndum, ber þeim samkvæmt lögum að tilkynna nýtt lögheimili til Þjóðskrár Íslands innan sjö daga.
- Nauðsynlegt er að skila ýmsum vottorðum, eyðublöðum og tilkynningum til opinberra stofnana svo réttindi og skyldur taki gildi. Meðal þeirra stofnana sem þarf að hafa samband við og tilkynna sig hjá eru:
- Tryggingastofnun ríkisins, vegna almannatrygginga.
- Heilsugæslan/heilbrigðisstofnanir, vegna heilsugæslu og heimilislæknis.
- Vinnumálastofnun eða þjónustuskrifstofa hennar, vegna atvinnuleysisskráningar.
Flutningur til Íslands á vef TR
Tvísköttunarsamningar Íslands við önnur ríki rsk.is
- Sækja þarf um daggæslu eða leikskólavist fyrir börn yngri en 6 ára, ef þörf er á, og skrá börn og unglinga á skólaskyldualdri í grunnskóla. Allar nánari upplýsingar og eyðublöð er að finna á vefjum leikskóla, félags- og þjónustumiðstöðva, sveitarfélaga og grunnskóla.
Grunnskólar á island.is
Leikskólar á island.is
Sveitarfélög á landinu - Búslóðir þeirra sem eru að flytja heim eru tollfrjálsar að vissum skilyrðum uppfylltum. Á þetta við um húsgögn, búsáhöld og aðra persónulega muni. Greiða þarf lögboðin aðflutningsgjöld af bílum. Sjálfsagt er að tryggja búslóð sem flutt er milli landa hjá tryggingafélagi.
Um búferlaflutninga á vef Tollstjóra
Um inn- og útflutning dýra og matvæla á vef Matvælastofnunar
Vert að skoða
- Á leið heim úr námi á vef SÍNE
- Ertu að flytja?, bæklingur Orkuveitu Reykjavíkur (pdf, 150 kb)
- Flutningur milli landa á vef Sjúkratrygginga
- Flutningur til Íslands á vef TR
- Norræn vefgátt um almannatryggingar
- Samningar á milli landa á vef TR
- Um búslóðaflutninga á vef Eimskips
- Um búslóðaflutninga á vef Samskipa
- Um flutning milli Norðurlanda
- Upplýsingabæklingar um tollfríðindi og tollfrjálsan innflutning á vef Tollstjóra

