Kjarasamningar
Kjarasamningar
Kjarasamningar eru samningar milli stéttarfélaga og atvinnurekenda og samtaka þeirra um laun og starfskjör launafólks. Í þeim er tilgreint hver lágmarkskjör skulu vera fyrir tiltekin störf á því svæði sem samningurinn nær til.
Yfirlit
Kjarasamningar
- Kjarasamningar eru gerðir innan ramma laga sem gilda um vinnumarkaðinn og kveða nánar á um starfskjör launafólks en lög gera.
- Kjarasamningar hafa almennt að geyma ákvæði um laun, launabreytingar, vinnutíma, orlof, rétt til launa og veikinda og rétt í slysatilvikum, tryggingar, uppsagnarfrest, iðgjöld til lífeyrissjóða og sjúkra- og starfsmenntasjóða, félagsgjöld og trúnaðarmenn stéttarfélaga.
- Atvinnurekanda og starfsmanni er óheimilt að semja um lægri laun og lakari starfskjör en þau sem viðkomandi kjarasamningar kveða á um. Slíkir samningar eru ógildir að því marki sem vikið er frá ákvæðum kjarasamninga.
- Starfsmanni er heimilt að semja um betri kjör sér til handa en þau lágmarkskjör sem kjarasamningur kveður á um.
- Stéttarfélög eru samningsaðilar við gerð kjarasamninga og gæta hagsmuna launafólks gagnvart atvinnurekendum.
Stéttarfélög á island.is - Samtök atvinnulífsins fara með samningsumboð fyrir hönd aðildarfyrirtækja sinna í kjarasamningum.
Samtök atvinnulífsins - Samninganefnd ríkisins semur fyrir hönd fjármálaráðherra við ríkisstarfsmenn en launanefnd sveitarfélaga semur við samtök sinna starfsmanna.
Launanefnd sveitarfélaga - Ef stéttarfélög og viðsemjendur þeirra komast ekki að samkomulagi í kjaraviðræðum er heimilt að vísa deilum þeirra til ríkissáttasemjara en hlutverk hans er að leita sátta í vinnudeilum.
Ríkissáttasemjari
Vert að skoða
- Kjarasamningar og tengt efni á vef ASÍ
- Kjarasamningar og tengt efni á vef fjármálaráðuneytis
- Kjaramál KÍ
- Kjara- og réttindamál BHM
- Kjaravefur BSRB
- SA - Samtök atvinnulífsins

