Aðilar vinnumarkaðarins
Aðilar vinnumarkaðarins
Vinnumarkaðurinn er vettvangur atvinnurekenda og launafólks. Leikreglur hans eru settar í lögum og kjarasamningum sem segja til um gagnkvæmar skyldur vinnuveitenda og starfsmanna.
Vinnumarkaðurinn
- Vinnumarkaðurinn skiptist í almennan og opinberan vinnumarkað. Á almennum vinnumarkaði starfa fyrirtæki í eigu einkaaðila og hlutafélög en á opinberum vinnumarkaði eru fyrirtæki og stofnanir í eigu ríkis og sveitarfélaga, auk félaga og stofnana sem veita opinbera þjónustu.
- Mismunandi lög og reglur gilda að ýmsu leyti um almennan og opinberan vinnumarkað
- Málefni vinnumarkaðarins heyra undir félagsmálaráðuneyti.
Um vinnumál á vef velferðarráðuneytis
Aðilar vinnumarkaðarins
- Heildarsamtök launafólks annars vegar og atvinnurekenda hins vegar eru venjulega nefnd aðilar vinnumarkaðarins.
- Alþýðusamband Íslands, ASÍ, eru heildarsamtök launafólks á almennum vinnumarkaði.
-
Samtök atvinnulífsins, SA, eru heildarsamtök atvinnurekenda á almennum vinnumarkaði.
- Heildarsamtök og -félög launafólks á opinberum vinnumarkaði eru:
- Málefni ríkisstarfsmanna heyra almennt undir fjármálaráðherra.
Starfsmannaskrifstofa fjármálaráðuneytis
Um málefni ríkisstarfsmanna á vef fjármálaráðuneytis
Vert að skoða
- Hagtölur um laun, tekjur og vinnumarkað hjá Hagstofu
- rettindi.is. Fræðsla fyrir ungt fólk á vinnumarkaði
- Sjálfstætt starfandi atvinnurekendur á island.is
- Vinna barna og unglinga. Fræðsla á vef umboðsmanns barna
- Vinnuréttarvefur ASÍ

