Launafólk

Efnisflokkar

Laun

Laun umfram taxta kjarasamninga eru samningsatriði á milli atvinnurekanda og starfsmanns. Þau skal greiða út samkvæmt fyrirkomulagi sem ákveðið er í kjara- eða ráðningarsamningi.

Orlofsréttur

Launafólk á rétt á orlofi. Orlofsréttur er annars vegar réttur til orlofsdaga og/eða sumarleyfis, og hins vegar réttur til launa á meðan leyfi stendur, orlofslauna.

Stéttarfélög

Hlutverk stéttarfélaga er fyrst og fremst að semja um laun og önnur starfskjör í kjarasamningum fyrir hönd félagsmanna sinna og gæta hagsmuna þeirra á vinnumarkaði.

Uppsagnir starfsfólks

Komi til uppsagna gilda ákveðin lög og reglur um uppsagnarferlið. 

Veikindaréttur

Veikindaréttur felst í því að með vinnu ávinnur launfólk sér vissan rétt til launa í forföllum vegna eigin veikinda eða barna sinna. Um vinnuslys og atvinnusjúkdóma gilda sérstakar reglur.


Laun og önnur starfskjör, sem aðildarsamtök vinnumarkaðarins semja um, skulu vera lágmarkskjör, óháð kyni, þjóðerni eða ráðningartíma fyrir alla launamenn í viðkomandi starfsgrein á svæði því er samningurinn tekur til. Samningar einstakra launamanna og atvinnurekenda um lakari kjör en hinir almennu kjarasamningar ákveða skulu ógildir.

Úr lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.
nr. 55/1980.



Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica