Umboð og aðgangsstýring á Mínar síður
Hverjir geta skráð sig inn á Mínar síður?
Einstaklingar
Prókúruhafar fyrirtækja og félagasamtök
Prókúruhafar opinberra aðila s.s stofnanir, ráðuneyti og bæjarfélög
Forsjáraðilar barna
Persónulegir talsmenn
Einstaklingar og prókúruhafar geta einnig gefið öðrum aðgang til þess að skoða gögn sín á Mínum síðum.
Innskráning og aðgangsstýring - Leiðbeiningar:
Prókúruhafar fyrirtækja og stofnanna geta skráð sig inn á Mínar síður ef þeir eru skráðir prókuruhafar hjá Skattinum. Ef þú sérð ekki fyrirtæki þar sem prókúrutengsl eru til staðar, vinsamlegast hafið samband við Skattinn.
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Skiptir um notanda með því að smella á nafnið þitt í efra hægra horni og velur að Skipta um notanda.
Þá birtast þeir aðilar og fyrirtæki sem þú hefur aðgang að.
Aðgengileg gögn fyrirtækis á Mínum síðum
Prókúruhafar fyrirtækja og opinberir aðilar geta skráð sig inn á Mínar síður til að sjá:
Pósthólf fyrirtækisins sem inniheldur gögn sem stofnanir ríkisins hafa sent
Upplýsingar úr fyrirtækjaskrá
Fasteignir
Ökutæki
Hvernig get ég gefið öðrum aðgang að því að skoða gögn fyrirtækisins
Sjá hér að neðan: Að veita aðgang
Opinberir aðilar þurfa að skrá prókúruhafa hjá Skattinum til þess að fá aðgang að Mínum síðum og umboðskerfi Ísland.is.
Innskráning:
Þú velur að opna Mínar síður, í felliglugga er valið: Fyrirtæki og umboð.
Þú skráir þig inn með þínum eigin rafrænum skilríkjum
Þá birtast þeir aðilar, fyrirtæki og stofnanir sem þú hefur aðgang að.
Aðgengileg gögn opinberra aðila á Mínum síðum:
Prókúruhafar geta skráð sig inn á Mínar síður til að sjá:
Stafrænt pósthólf
Umsóknir
Upplýsingar úr fyrirtækjaskrá
Fasteignir
Ökutæki
Hvernig get ég gefið öðrum aðgang að því að skoða gögnin?
Sjá hér að neðan: Að veita aðgang - Fyrirtæki
Prókúruhafar fyrirtækja og stofnanna geta gefið öðrum aðgang til að sjá ákveðnar upplýsingar á Mínum síðum fyrir hönd fyrirtækja eða opinberra aðila. Það er gert með nokkrum einföldum skrefum.
Þú skráir þig inn sem fyrirtæki
Velur Aðgangsstýring í efnisyfirliti á vinstri hlið.
Þar getur þú valið hverjum þú vilt veita aðgang, að hvaða kerfishlutum og hversu lengi aðgangurinn á að vera virkur.
Aðgangsstýring
Prókúruhafar geta gefið einstaklingum Aðgangsstýringar réttindi. Með þeim getur starfsmaðurinn gefið öðrum réttindi til að sjá upplýsingar fyrirtækisins af því sem hann sjálfur hefur aðgang að. Oft á tíðum hafa einstaklingar hjá bókhaldsstofum aðgangsstýringar réttindi fyrir fyrirtæki og geta þannig gefið öðrum innan bókhaldsstofunar réttindi til að skoða gögn fyrirtækisins.
Prókúruhafi gefur aðgangsstýringarréttindi á eftirfarandi hátt:
Þú skráir þig inn sem fyrirtæki
Velur Aðgangsstýring í efnisyfirliti á vinstri hlið.
Velur aðilan sem á að hafa réttindi, hakar í Aðgangsstýring og þá kerfishluta sem sá aðila á að geta séð og gefið aðgang að, t.d. Fjármál.
Sá sem fær umboðið getur í kjölfarið skráð sig inn fyrir hönd fyritækisins og gefið öðrum aðgang að gögnum fyrirtækisins.
Einstaklingar geta gefið öðrum aðgang til að sjá ákveðnar upplýsingar á Mínum síðum s.s. Fjármál eða Pósthólf með nokkrum einföldum skrefum.
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Velur Aðgangsstýring í efnisyfirliti á vinstri hlið.
Þar getur þú valið hverjum þú vilt veita aðgang, að hvaða kerfishlutum og hversu lengi hann á að vera virkur.
Einstaklingurinn sem fær umboðið getur í kjölfarið skráð sig inn fyrir hönd þess sem veitti umboðið.
Forsjáraðilar geta skráð sig inn á Mínar síður fyrir hönd barnanna sinna óháð búsetu. Kerfið sækir forsjártengsl til Þjóðskrár. Ef þú sérð ekki barn þar sem forsjártengsl eru til staðar, vinsamlegast hafið samband við Þjóðskrá.
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Skiptir um notanda með því að smella á nafnið þitt í efra hægra horni og velur að skipta um notanda.
Þá birtast þeir aðilar og fyrirtæki sem þú hefur aðgang að.
Lögráða einstaklingar sem vegna fötlunar sinnar eiga erfitt með að gæta hagsmuna sinna eiga rétt á að velja persónulegan talsmann sér til aðstoðar. Réttindagæsla fatlaðra heldur utanum samninga á milli einstaklinga og persónulegra talsmanna og sótt er um þá samninga hjá Réttindagæslunni. Allir sem geta ekki séð um sig sjálfir geta sótt um persónulegan talsmann.
Persónulegur talsmaður getur skráð sig inn á Mínar síður Ísland.is fyrir hönd þeirra sem hann aðstoðar ef að samningurinn tilgreinir þau réttindi.
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Skiptir um notanda með því að smella á nafnið þitt í efra hægra horni og velur að skipta um notanda.
Þá birtast þeir aðilar og fyrirtæki sem þú hefur aðgang að.
Einstaklingur sem hefur veitt öðrum aðgang að Mínum síðum, getur alltaf afturkallað umboðið með nokkrum einföldum skrefum.
Einstaklingar:
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Velur Aðgangsstýring í efnisyfirliti á vinstri hlið.
Velur þann einstakling sem á að afturkalla umboðið hjá og eyðir umboði.
Einstaklingurinn sem áður hafði umboð mun ekki lengur getað skráð sig inn fyrir hönd þess sem hann hafði umboð fyrir.
Fyrirtæki:
Þú skráir þig inn með þínum persónulegu rafrænu skilríkjum á Mínar síður.
Skiptir yfir á fyrirtækið sem þú vilt loka aðgang að. Það er gert með því að ýta á nafnið þitt í hægra horni og velja að skipta um notanda.
Þegar þú hefur skráð þig inn sem fyrirtæki velur þú Aðgangsstýring í efnisyfirliti á vinstri hlið.
Velur þann einstakling sem á að afturkalla umboðið hjá og eyðir umboði.
Einstaklingurinn sem áður hafði umboð mun ekki lengur getað skráð sig inn fyrir hönd fyrirtækisins.
Einstaklingar geta valið úr þremur leiðum til að auðkenna sig inn á Mínar síður.
Með Auðkennisappinu en það gerir notendum kleift að auðkenna sig á þægilegan og einfaldan máta. Sú auðkenning krefst ekki íslensks símkorts sem getur verið hentugt t.d. fyrir íslendinga í útlöndum sem eru ekki lengur með íslenskt símkort.
Auðkenning með skilríki með korti. En með þeirri leið að þá þarf notandinn ekki að nota símann heldur getur tengt auðkenniskort við tölvuna sína og þannig auðkennt sig inn.
Aðgangsstýring
Þjónustuaðili
Stafrænt Ísland